Aðalvalmynd

Auglýsing

Nýjasta slúðrið!

24. nóvember 2008 klukkan 19:08


James Lafferty er komin með nýja samkvæmt blaðinu True love.
Í blaðinu stendur: James Lafferty has a new girlfriend named Rosa. She´s an unknown girl but a very pretty one! They met when James was on a holiday in Iceland. He was there with his ex girlfriend Sophia Bush but James dumped her when he met Rosa. "It was love at first side", says this crazy in love One tree hill star. The couple just bought a mansion in Beverly hills together and a close friend of James says they don´t leave the bedroom. Britney Spears is a neighbour of the couple and says she hasn´t been able to sleep since they moved there due to noises from James´and Rosa´s bedroom.
Rósa Hauksdóttir

Próf

01. desember 2007 klukkan 19:57
Já nú eru jólaprófin að hefjast á mánudaginn. Þetta er náttlega ekki fyndið hvað tíminn líður hratt. Og hér sit ég uppí rúmi bróður míns með sögubókina fyrir framan, glærushow í tölvunni og fullt af einhverjum blöðum og glósum. Orkan er á sínum stað uppí gluggakistu ásamt skál með pistasíum. Og ekki má gleyma harðsperrunum í bakinu og öxlunum eftir lyftingar og þrekhring og meiri lyftingar.

Ég er fíkill. Ekki eiturlyfjafíkill heldur er það miklu verra, ég er skákfíkill! Ég vissi ekki að það væri hægt! Þetta byrjaði fyrir nokkrum vikum síðan þegar ég og Björg fórum að tefla í skólanum. Þá hafði ég ekki teflt í mörg mörg ár. Síðan þá höfum við teflt dáldið mikið en Björg er sú eina sem nennir að tefla við mig og að sjálfsögðu er hún ekki alltaf við. Þannig ég fór að hugsa. Og fyrr en varir var ég farin að fletta upp á google: chessonline. Og ég var ekki lengi að finna síðu þar sem hægt er að tefla online við aðra skákfíkla/nörda. Þetta er ég búin að vera að gera samhliða lærdómi. Þann 24.des klukkan tíu mínútur í sex er síðan sett á skák á milli mín og bróður míns. Hann er í Barcelona núna og kemur ekki fyrr en rétt fyrir jól þannig að ég er mjög spennt. Það er samt alltaf þannig að í öllum prófatörnum finnum ég og Kristján einhvern leik eða eitthvað sem við förum alltaf í í pásunni okkar. Einu sinni var það sudoku, slimesoccer, cityjumper, og nú er ég ein í skákinni!

Jæja, nú ætla ég að halda áfram lærdómnum:)

Veriði sæl:)
Rósa Hauksdóttir

Hahahæ!

19. júní 2007 klukkan 20:24
Ég sit hér að bíða eftir hamborgaranum mínum sem er að grillast og hef ákveðið að henda einu bloggi inn. Eins vel og ég byrjaði þessa síðu hef ég undanfarið verið einstaklega löt við að blogga, en það er nú bara þannig að maður bloggar minna á sumrin. Helgin var mjög skemmtileg en alltaf eru þær of stuttar!

En það sem er framundan hjá mér er:

Danmörk á laugardaginnSvalur

keppa keppa keppaHlæjandi

Djamm inná milliGlottandi

Þjóðhátíð í EyjumÞögull sem gröfin

Jaa maður getur ekki annað en verið hamingjusamur:)  Hafið það gott!
Rósa Hauksdóttir

Vilt nú ná þér í skjótfengan pening?

01. maí 2007 klukkan 19:29

Einstaklingur óskast í starf siðgæðisvarðar fyrir unga stúlku og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Starfstími er frá 1.maí - 14.maí og eru góð laun í boði.

Starfið er fólgið í því að koma í veg fyrir að stúlkan borði yfir sig af sælgæti og öðru drasli, að hún fari ekki útúr húsi lítandi út eins og afturganga og að lemja hana í hvert skipti sem hún lítur upp úr námsbókunum. Stúlkan er nefninlega í prófum og er mikil hætta að þetta þrennt gerist ef ekki verður ráðið í starfið sem fyrst.

Hæfniskröfur: BNA-gráða í siðgæðisvörslu æskileg en þó ekki nauðsynleg.

Frekari upplýsingar gefast í síma 691-4019 eða á heimasíðunni http://www.sidgaedisvordurhandarosuoskast.is

Rósa Hauksdóttir

Gaman gaman!

03. apríl 2007 klukkan 14:24
Jæja þá er maður komin heim frá Portúgal eftir geðveika ferð! Ég og Íris, að öðru nafni Bjarni og Lúsí, vorum saman í herbergi í íbúð með fjórum í viðbót, Agnesi, Gullu, Katrínu og Guðnýju.

Tvær æfingar voru á dag auk þess sem við spiluðum tvo æfingaleiki. Á milli þess var legið í sólbaði, borðað, farið að versla í Algarve shopping og Niketown þar sem hægt var að fá Nikevörur á aðeins betra verði en hérna heima.

Á mánudagskvöldið fórum við út að borða saman á "staðinn okkar" sem var mjög góður ítalskur staður. Eftir það kíktum við á karokeebar að nafni Paradise. Þar var mikið fjör sem endaði snögglega þegar Íris kom hlaupandi móð og másandi og tilkynnti að búið væri að brjótast inní eina íbúðina og búið væri að ræna bara öllu sem var einhvers virði. Það voru 2 fartölvur, 4 ipodar, 3 símar og peningur og annað. Leiðinlegur endir á annars góðu kvöldi.

Þótt að öll kvöldin hafi verið frekar skemmtileg stóð föstudagskvöldið, sem var síðasta kvöldið, eiginlega uppúr. Þá var farið í gamla bæinn á stað sem heitir Bank. Fengum okkur að borða þar og ég og Hulda fengum okkur kokteila með matnum. Ég fékk mér Blue lagoon sem var ekkert voðalega góður, fann alltof mikið vodkabragð af honum, en ég drakk hann þó. Svo var mér tilkynnt að vígslan mín væri í kvöld. Ég fékk sms frá Emblu og Ólínu um að ég ætti að velja mér lag og syngja það fyrir allan staðinn. Og eftir smá rósarvín þá reið ég á vaðið og söng we are the champions fyrir framan allan staðinn sem var troðfullur af meðal annars íslenskum strákum. Ég get nú ekki sagt að ég hafi náð Freddie Mercury alveg fullkomlega en það var þó klappað vel fyrir mér og drakk ég frítt af barnum það sem eftir var kvöldsins. Veit ekki hvort að það hafi verið það sniðugasta!

Daginn eftir var svo lokarimma keppninar ungir-gamlir. Misjafnt ástand var á fólki og  töpuðum við ungu og var okkur hent í fötunum,  í sundlaugina á hótelinu sem var frekar köld.

   

Eins og þið kannski sjáið á þessum myndum er maður helvíti tanaður:)

En jæja, nú taka bara við frekar leiðinlegir tímar, ég þarf að læra eins og brjálæðingur í páskafríinu til að ná upp því sem ég missti af.

Bless bless
Rósa Hauksdóttir

Fyrsta ástin

16. mars 2007 klukkan 16:17

Fyrstu ástina upplifði ég aðeins 7 ára gömul. Ásamt því að vera fyrsta sambandið mitt var þetta líka það lengsta hingað til eða í nær tvö ár. Pilturinn hét Aadrian og var ættaður einhversstaðar úr Ameríkunni.

Þetta byrjaði allt voða rómó. Við vorum í heilsdagsskólanum að spila samstæðuspil þegar að Aadrian segir við mig: ,,Ef þú vinnur þetta spil skal ég kyssa þig". Og þegar ég hafði unnið stóð hann við orð sín og smellti á mig kossi sem átti ekki eftir að vera sá síðasti.

Það er oft sagt að maður gleymi aldrei fyrstu ástinni sinni. Aadrian hjálpaði svolítið við það að ég man enn þann dag í dag eftir honum. Hann pissaði oft í sturtuna heima hjá sér, límdi fótboltamyndir á vegginn með límstifti, henti páfagauknum sínum í ofninn svo fátt eitt sé nefnt. En það var þetta sem dró mig að honum, maður vissi aldrei hverju maður átti von á.

Einn daginn tilkynnti hann mér það að hann væri að fara að flytja til ríkja kennd við bönd. Það tók mig sárt að þurfa að kveðja hann en ég jafnaði mig þó að lokum.

Þá er það spurningin sem ég mun aldrei fá svar við, hvar er Aadrian í dag?

Rósa Hauksdóttir

Lífið er ósanngjarnt!

12. mars 2007 klukkan 21:17
Ef maður hugsar útí það þá er lífið frekar ósanngjarnt. Til að nefna dæmi þá er góður matur í flestum tilvikum mjög óhollur og fitandi. Ég er að tala um matinn sem mann langar í en fær sér þess í stað ávexti, skyr eða speltbrauð. Ekki að sá matur sé ógeðslega vondur, en það verður bara að viðurkennast að mann langar alltaf frekar í óholla matinn. Enginn skal reyna að segja mér að þeir njóti þess að borða kálblöð!
Í öðru lagi, áfengi. Það vita það flestir sem hafa dottið alrækilega í það hversu ótrúlega gaman það er. En áfengi er bæði ógeðslegt á bragðið og maður er ónýtur daginn eftir. Þá er ég að tala um að það glamrar í hausnum á manni eins og sinfóníuhljómsveit Íslands sé með tónleika þar inni svo ekki megi gleyma ógleðinni ógurlegu.
Þetta líf snýst þá víst bara um það að velja og hafna. Frekar ósanngjarnt verð ég að segja!

Rósa Hauksdóttir

Letin

07. mars 2007 klukkan 14:48
Ég var að hugsa hvað lífið væri einfaldara ef leti væri ekki til. Það eru svo margir hlutir sem eru látnir sitja á hakanum sökum þessa einfalda hugtaks. Ein tegund leti, lærdómsleti, á þar mjög vel við mig. Nú er ég t.d. að fara í próf í jarðfræði á morgun og eins spennandi og það er að lesa um mismunandi gerðir steinda að þá er letin alveg búin að heltaka mig. Jújú ég er alveg búin að lesa hluta af námsefninu fyrir prófið en ég tók það á hraða snigilsins. Dæmigerð ég að læra fyrir svona áhugavert fag er að ég les frá greinaskilum að greinaskilum og lít svo út um gluggann(njósna um Auði), kíki á eina tvær heimasíður svo ekki megi gleyma Myspace. Það þyrfti einhver að fara aftur til þess dags þegar leti varð til. Ætli Eva hafi ekki nennt að gera eitthvað sem Guð bað hana um og þannig hafi leti orðið til. Nei það er nóg að kenna henni um syndina. Ég kenni Adami um!

jæja best að halda áfram...
Rósa Hauksdóttir

Dí...

03. mars 2007 klukkan 11:54

Ok vá það er ótrúlegt hvað þessi Insider-þáttur getur fjallað mikið um ekki neitt. Á hverjum degi eru einhverjar sláandi fréttir um Önnu-Nicole-Smith, eða það segja þeir. Sláandi fréttirnar eru svo að hún hafi verið í hvítri peysu þegar hún dó eða eitthvað álíka.  Svo var ekkert minna fjallað um hana áður en hún dó. Það eina sem þessi blessaða kona hefur unnið sér til frægðar er að vera með D-skálar og að hafa gifst moldríkum gömlum karli. Því myndi ég allavega svara ef ég væri spurð, hver var Anna-Nicole-Smith?

Ég hef svosem ekkert á móti þessari konu, og var hún ábyggilega hið vænsta skinn. Ég trúi því bara ekki að það sé ekki eitthvað merkilegra að gerast í þessum stóra heimi okkar!
 E-skálar kannski frekar?

Rósa Hauksdóttir

Loforð, ljóð og amma

18. febrúar 2007 klukkan 18:23

Þessi síða hefur verið stofnuð til minningar um langömmu mína hana Vatnsenda-Rósu. Ég ætla ekki að fara að lofa uppí ermina á mér um að vera dugleg en maður veit aldrei.

Þegar ég var lítil var ég rosalega aktív í að semja ljóð. Til er heill hellingur af ljóðum af öllum gerðum eftir mig, misgóð.  Stundum þegar ég var hjá ömmu og mér leiddist settist ég við borðið í barnaherberginu og tók að yrkja og las það síðan upp fyrir hana og alltaf var amma jafn stolt af mér. Hún  var að grafa upp eitt ljóð eftir mig þar sem ég hef verið svona 8 eða 9 ára. Það hljóðar svo:

Lúmskur ertu vinur minn
Þú átt að vera dansari minn.
Vertu ekki leiður
Þá verður pabbi reiður

Dansari minn-þú maður
Vertu svolítið glaður
Þú átt mig að
Ég á þig að-eða hvað

Síðan þá hefur ferill minn sem skáld einungis legið uppá við.

Rósa Hauksdóttir